Í tilefni af 180 ára afmæli Menntaskólans í Reykjavík verður myndum úr safni skólans varpað á framhlið Gamla skóla. Elstu myndirnar eru frá 1891 og yngstu frá því í haust. Myndirnar verða sýnilegar á kvöldin út októbermánuð á milli kl. 19 og 01.