Menntaskólinn í Reykjavík heldur upp á 180 ára afmæli sitt þann 1. október 2026. Afmælismóttaka verður kl. 13:00 fimmtudaginn 1. október, fyrir framan skólahúsið á Lækjargötu. Að móttökunni lokinni verða hús menntaskólans opin almenningi til að skoða og spjalla við starfsfólk.
Hlekkur á viðburð: https://fb.me/e/4YY60WWjU
Í afmælisvikunni verða að auki sagna- og fræðslufundir kvöldin 29. og 30. september, þar sem fjallað verður um menntaskólaminningar ýmissa MR-inga, langa sögu skólans og margt fleira áhugavert.
Hér er hlekkur á Sögustund í MR, minningar úr menntaskóla, þriðjudaginn 29. september: https://fb.me/e/5iyvRxkQp
Hlökkum til að sjá ykkur!