Miðvikudaginn 19. ágúst var Menntaskólinn í Reykjavík settur í 181. sinn í Dómkirkjunni.  Sr. Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur tók á móti nemendum og starfsfólki, er þau gengu fylktu liði frá Gamla skóla yfir í Dómkirkjuna.  Sr. Elínborg minntist þess að í ár eru 970 ár frá því að Skálholtsbiskupsdæmið var stofnað og kennsla hófst í Skálholtsskóla, en MR á rætur sínar að rekja til hans.

Svo skemmtilega vill til að MR heldur upp á 180 ára afmæli skólans 1. október, en þá fluttist skólinn í nývígt hús við Lækjargötu, og Dómkirkjan heldur einnig upp á 230 ára afmæli í haust, þegar kirkjan var fyrst vígð hér í Reykjavík.

Aðsókn í MR í vor var mjög góð og sóttu fleiri nýnemar um en komust að.   291 nemandi situr nú í 4. bekk (á 1. ári), 243 á náttúrufræðibraut og 48 á málabraut.

Alls verða 800 nemendur við skólann í vetur, nokkuð fleiri en í fyrra (753).  291 í 4. bekk, 261 í 5. bekk, 241 í 6. bekk og 7 nemendur á starfsbraut.

Við bjóðum nemendur og starfsfólk velkomið aftur til starfa.