Menntaskólinn í Reykjavík verður settur miðvikudaginn 19. ágúst kl. 14:00 í Dómkirkjunni. Nemendur og starfsfólk safnast saman kl. 13:50 fyrir framan Gamla skóla og þaðan er er gengið fylktu liði í Dómkirkjuna þar sem rektor setur skólann.

Fyrr sama dag verður kynning fyrir nýnema og er mæting kl. 11:30 í heimastofur bekkjana. Upplýsingar um bekki og stofur verða á upplýsingatöflum í Gamla skóla og í Casa Nova, einnig verður starfsfólk skólans til taks til að vísa nemendum á réttar stofur.

Bóksalan opnar þriðjudaginn 11. ágúst og verður á 2. hæð í Gamla skóla. Þar eru til sölu fjölrit og hefti sem framleidd eru í skólanum. Bóksalan er opin á opnunartíma skrifstofunnar en skrifstofan er opin frá kl 8:10 til 15:30 mánudaga til fimmtudaga og frá 9:10 til 13:00 á föstudögum. Lokað er í hádeginu á milli kl. 12:10 og 12:40.

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá kl. 8:30 fimmtudaginn 20. ágúst.