Um einkunnir og próf – Gildir fyrir nemendur sem hófu nám haustið 2026 eða síðar
- Almenn ákvæði
1.1. Menntaskólinn í Reykjavík er bekkjaskóli og námsmat hans lýtur þeim ákvæðum Aðalnámskrár framhaldsskóla sem eiga við um slíka skóla.
- Um próftökutímabil og lengd prófa
2.1. Tvö próftímabil eru í öllum bekkjum, jólapróf og vorpróf, og fara þau fram í desember og apríl-maí.
2.2. Jólapróf og vorpróf, önnur en stúdentspróf, eru oftast 1½ klst. Stúdentspróf eru yfirleitt 2 klst. ef prófað er úr einu námsári, en oftast 3 klst. ef námefnið nær yfir 2 ár eða fleiri. Að auki eru munnleg próf í sumum greinum.
- Um námsmat og einkunnakvarða
3.1. Lokaeinkunn er gefin í hverri grein um jól og vor. Lokaeinkunn um jól er samsett úr jólaprófseinkunn og vinnu nemanda í greininni á haustmisseri og lokaeinkunn um vor er samsett úr vorprófseinkunn og vinnu nemanda í greininni á vormisseri.
3.2. Lokaeinkunnir eru gefnar í heilum tölum frá 1 til 10. Lágmarkseinkunn er 5.
3.3. Aðaleinkunn er vegið meðaltal lokaeinkunna að meðtalinni einkunn fyrir skólasókn (sjá nánar um hana í grein 1.3 í kaflanum Reglur um skólasókn). Vægi einkunna fer eftir einingafjölda í hverri námsgrein. Skólasókn vegur eina einingu. Lágmark aðaleinkunnar er 5,0. Þeir sem eru undir lágmarkinu 5,0 teljast fallnir á árinu.
3.4. Þó að vegið meðaltal einkunna á jólaprófi sé undir 5,0 verður nemanda leyft að sitja í skólanum á síðara misseri. Sjá grein 4.2 um endurtökupróf.
3.5. Ef nemandi endurtekur bekk getur hann sótt um til konrektors að sleppa þeim millibekkjagreinum sem hann hefur fengið lokaeinkunnina 7 eða hærra.
- Um endurtökupróf
4.1. Nemandi, sem hefur aðaleinkunn 5,0 eða hærri í lok misseris en hefur hlotið einkunn undir lágmarki í einstökum greinum, hefur heimild til þess að þreyta endurtökupróf. Endurtökupróf eru haldin í janúar og júní. Um gjaldtöku vegna endurtökuprófa má sjá hér: https://mr.is/thjonusta/gjaldskra/.
4.2. Falli nemandi í áfanga um jól, er honum heimilt að sitja áfram í áfanganum á vormisseri. Nemandi getur sótt um að fá áfangann á haustmisseri metinn ef samanlagðar lokaeinkunnir á haust- og vormisseri eru 9 eða hærra.
4.3 Falli nemandi í einni grein, eftir endurtökupróf, þá er heimilt að flytja hann á milli bekkja einu sinni á námsferlinum ef námsgreinin er ekki aðalgrein á námsbraut hans (sjá grein 6.1).
4.4. Eftir einkunnaafhendingu um jól og að vori þurfa nemendur sjálfir að átta sig á stöðu sinni og ef þarf, að fylgjast með því hvenær endurtökupróf eru haldin og mæta tímanlega í þau.
- Færsla á milli brauta
Eftirfarandi ákvæði gildir um nemendur 4. bekkjar: Ef nemandi á málabraut óskar eftir að færa sig yfir á náttúrufræðibraut þarf hann að þreyta próf í stærðfræði og efnafræði. Sömuleiðis þarf nemandi á náttúrufræðibraut sem óskar eftir færslu yfir á málabraut að þreyta próf í ensku og bæta við sig 5 einingum í dönsku.
- Um aðalgreinar
6.1 Eftirfarandi greinar teljast aðalnámsgreinar á brautum í Menntaskólanum í Reykjavík, sbr. grein 4.1.:
| Málabraut | Náttúrufræðibraut | |
| 4. bekkur | 1. Íslenska
2. Enska |
1. Íslenska
2. Stærðfræði |
| 5. bekkur | 1. Íslenska
2. Enska 3. Latína (fornmálad.) / þriðja mál (nýmálad.) |
1. Íslenska
2. Stærðfræði 3. Eðlisfræði (eðlisfræðid.) / líffræði (náttúrufræðid.) |
- Um stúdentspróf
7.1. Stúdentspróf eru skrifleg yfirlitspróf. Að auki eru munnleg próf í sumum greinum.
7.2. Einkunnir á stúdentsprófum eru gefnar í heilum tölum frá 1 til 10. Aðaleinkunn á stúdentsprófi er reiknuð þannig: Reiknað er vegið meðaltal allra lokaeinkunna sem nemandinn hefur fengið í skólanum . Vægi einkunna fer eftir einingafjölda í hverjum áfanga.
Hafi nemandi fengið námsgrein metna úr öðrum skóla án einkunnar reiknast hún ekki inn í aðaleinkunn.
7.3. Nemandi telst hafa lokið stúdentsprófi þegar hann hefur fullnægt eftirfarandi lágmarkskröfum um einkunnir:
- Aðaleinkunn að lágmarki 5,0.
- Lokaeinkunn í hverri grein ekki lægri en 5.
- Nemandi telst hafa lokið stúdentsprófi þótt tvær lokaeinkunnir, á lokamisseri greinarinnar, séu undir ofangreindu lágmarki.
- Um veikindi í prófum
8.1. Veikindi þá daga, er próf fara fram, skal skrá að morgni prófdags í gegnum INNU. Þeir nemendur, sem koma ekki til prófs og boða ekki lögmæt forföll hafa ekki rétt á sjúkraprófi.
- Um nemendur með sértæka námsörðugleika og fleiri sértilvik
9.1. Nemendur, sem greinst hafa með sértæka námsörðugleika, geta sótt um það til námsráðgjafa að fá sérrúrræði í jóla- og vorprófum.
- Próftökureglur
10.1. Nemendum ber að mæta tímanlega til prófs. Upplýsingar um skipan nemenda í stofur í prófunum er jafnan að finna á upplýsingatöflu í anddyri Skólahússins og ber nemandi ábyrgð á að kynna sér það. Nemendum ber einnig að fylgjast með hvenær sjúkrapróf eru haldin, ef um slíkt er að ræða.
10.2. Nemandi sem mætir of seint til prófs á ekki rétt á framlengingu próftíma.
10.3. Nemendum er með öllu óheimilt að fara inn í prófstofur fyrir upphaf prófs.
10.4. Prófgæslumenn ráða sætaskipan nemenda í prófi og er nemendum óheimilt að helga sér sérstök sæti.
10.5. Til próftöku þarf nemandi ekki neitt annað en skriffæri sín (auk leyfðra hjálpargagna í einstökum prófum). Nemendur hengja yfirhafnir á snaga eða fatahengi sem í stofunni eru og leggja þar undir poka eða töskur sem þeir kunna að hafa.
10.6. Ekki má hafa neitt á prófborði annað en skrifföng og prófgögn. Pennaveski eiga að vera á gólfi við hlið borðsins.
10.7. Nemendur skulu slökkva á farsímum og setja á gólf við hlið borðsins. Bannað er að hafa farsíma og snjallúr á sér í prófi. Ef nemandi er staðinn að því að vera með farsíma eða snjallúr á sér er það jafngilt prófsvindli.
10.8. Algjör þögn og ró skal ríkja í prófsal.
10.9. Óheimilt er að skila úrlausn fyrr en liðnar eru 60 mínútur af próftímanum. Nemendur geta ekki hafið próftöku að þeim tíma liðnum.
10.10. Ef nemandi skilar prófi áður en próftíma lýkur og yfirgefur prófstofu, skal hann sýna tillitssemi og gæta þess í hvívetna að valda ekki ónæði. Nemendum er óheimilt að dvelja framan við prófstofur eða annars staðar þar sem þeir geta valdið ónæði meðan próf stendur yfir.
10.11. Nemandi, sem staðinn er að svindli í prófi, fær einkunnina 1 í þeirri námsgrein sem um ræðir og sætir sérstökum úrræðum.
10.12. Ítrekuð brot á próftökureglum geta valdið brottrekstri úr skóla.
- Um prófsýningu, birtingu einkunna, varðveislu prófúrlausna og fleira
11.1. Um prófsýningu, birtingu einkunna, varðveislu prófúrlausna, ágreining um námsmat, meðferð mála og meðferð persónuupplýsinga vísast til ákvæða í greinum 11.1, 11.2 og 11.4 í Aðalnámskrá framhaldsskóla og reglur nr. 913/2021 um eyðingu prófúrlausna og metinna námsmatsgagna hjá afhendingarskyldum aðilum.
11.2. Óski nemandi eftir gögnum tengdum námsframvindu hans (t.d. ljósriti af prófúrlausnum eða prófverkefnum) skal gera það skriflega á mr@mr.is. Skólinn áskilur sér rétt til sanngjarnrar gjaldtöku fyrir slíka þjónustu.
11.3. Nemendur og forráðamenn nemenda undir 18 ára fá aðgang að Innu, upplýsingakerfi framhaldsskólanna, og geta þar fylgst með námsferli sínum. Slóðin er inna.is.
Reykjavík, 6. ágúst 2026.
Sólveig Guðrún Hannesdóttir
rektor