Skrifstofa skólans er lokuð frá 19. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur 5. ágúst og bóksala hefst 11. ágúst.
Áhugi fyrir skólanum var mjög mikill í vor og er skólinn fullsetinn. Ef þið hafið spurningar varðandi innritun og biðlista í skólann vinsamlegast sendið póst á mr@mr.is. Öllum erindum verður svarað í ágúst.