Menntaskólinn í Reykjavík brautskráði á föstudaginn 195 stúdenta við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. 35 af máladeildum, 36 af eðlisfræðideildum og 124 af náttúrufræðideildum.
Við skólaslitin var farið yfir fjölbreytt og öflugt starf skólans á liðnu skólaári þar sem námsárangur, félagslíf, listastarf og þátttaka í innlendum og alþjóðlegum keppnum settu sterkan svip á skólastarfið.
Á meðal helstu viðburða vetrarins voru sýningar leikfélaganna Herranætur og Frúardags, fjölmennir félagsviðburðir á vegum nemendafélaganna Skólafélagsins og Framtíðarinnar, auk þátttöku nemenda í fjölmörgum raungreina- og tungumálakeppnum. Lið MR sigraði mælsku- og rökræðukeppnina MORFÍS í vor.
Nemendur skólans náðu einnig framúrskarandi árangri í landskeppnum í stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði og líffræði og tryggðu sér þátttöku í alþjóðlegum keppnum fyrir hönd Íslands. Þá hlutu nemendur verðlaun í smásagnakeppni í ensku, þýsku- og frönskukeppnum.
Við athöfnina kom fram að skólastarfið hefði einkennst af metnaði, samheldni og öflugu stoðkerfi. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi fjölbreytni í námi og þess að nemendur hafi raunverulegt val um námsleiðir við hæfi.
Í vetur tók skólinn í fyrsta sinn þátt í fyrirtækjasmiðju í samstarfi við Unga frumkvöðla og fóru fjölmargir valáfangar í námsferðir erlendis, meðal annars til Parísar, Madrídar, Kaupmannahafnar og Aþenu.
Skólinn fékk 4,5 milljóna króna styrk frá Menningar- og framfarasjóði Ludvig Storr til endurnýjunar tækjabúnaðar fyrir verklega kennslu í raungreinum.
Árið 2026 markar jafnframt tímamót í sögu skólans, en þann 1. október næstkomandi verður Menntaskólinn í Reykjavík 180 ára gamall. Af því tilefni verður meðal annars gefið út fimmta bindi Sögu Reykjavíkurskóla.
Framúrskarandi námsárangur
Dux scholae vorið 2026 er Hugrún Eva Haraldsdóttir úr 6.R með einkunnina 9,81 og semidux er María Líf Ágústsdóttir úr 6.R með einkunnina 9,79.
Alls útskrifuðust 23 stúdentar með ágætiseinkunn.
Í kveðjuorðum til nýstúdenta var lögð áhersla á mikilvægi gagnrýninnar hugsunar, umburðarlyndis, þrautseigju og manngæsku á tímum hraðra samfélagsbreytinga og tækniframfara.