Rektor afhenti í gær nemendum í valáfanganum fyrirtækjasmiðjan viðurkenningaskírteini fyrir þátttöku í vörumessunni Ungir Frumkvöðlar.

Nemendur í fyrirtækjasmiðjunni fengu tækifæri til að kynnast heimi nýsköpunar og atvinnulífs með því að þróa eigin vörur og reka lítil fyrirtæki. Markmiðið er að efla sköpunargáfu, sjálfstæði og viðskiptahugsun nemenda.

Í áfanganum unnu nemendur í hópum þar sem þeir fóru í gengum allt ferlið frá hugmyndavinnu og markaðsrannsókna til hönnunar, framleiðslu og sölu. Hver hópur stofnaði sitt eigið fyrirtæki og kynnti vöruna sína fyrir gesti vörumessunnar sem haldin var í Smáralind. Vörurnar sem nemendur þróuðu voru fjölbreyttar og endurspegluðu áhugasvið þeirra og hugmyndaflug. Meðal þess sem nemendur voru að kynna voru kreatíndrykkur, hárolía og vefsíða þar sem hægt er að selja vörur eða vera með vöruskipti.