Forkeppni eðlisfræðikeppninnar fór fram 10.febrúar síðastliðinn og var árangur nemenda úr MR afar góður. Efstu 16 keppendum er boðin þátttaka í úrslitakeppninni sem fram fer í mars. Af þessum keppendum koma 7 úr MR, en þeir eru:
Atli Freyr Halldórsson
Daði Logason
Höskuldur Tinni Einarsson
Jóakim Uni Arnaldarson
Magnús Thor Holloway
Úlfar Jökull Eyjólfsson
Þorsteinn Snæland