Fjórir fyrrverandi nemendur Menntaskólans í Reykjavík við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum.
Þetta eru Aron Haraldsson, Erna María Helgadóttir, Sigrún Klausen og Sigurður Baldvin Ólafsson og óskum við þeim innilega til hamingju.