Síðasti opnunardagur skrifstofu skólans er föstudagurinn 20. júní.  Skrifstofan opnar aftur 6. ágúst kl. 9 og bóksala hefst 11. ágúst.

Bókalistar verða aðgengilegir á heimasíðu skólans og stundatöflur verða aðgengilegar í Innu nokkrum dögum fyrir skólasetningu. Nemendur og forráðamenn hafa aðgang að upplýsinga- og kennslukerfinu Innu en nota þarf rafræn skilríki til þess að skrá sig inn. Í Innu er haldið utan um nám nemenda eins og til dæmis heimanám, einkunnir og viðveru.

Skólasetning og kynning fyrir nýnema verður 19. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 20. ágúst.

Varðandi erindi sem snúa að innritun og biðlista í skólann, vinsamlega sendið póst á mr@mr.is. Öllum erindum verður svarað í ágúst.

Gleðilegt sumar!