Útför Ragnheiðar Torfadóttur, fyrrum rektors Menntaskólans í Reykjavík, var gerð frá Dómkirkjunni í gær.
Ragnheiður Torfadóttir braut blað í sögu Menntaskólans í Reykjavík þegar hún var skipuð rektor, fyrst kvenna í langri sögu skólans árið 1995. Ragnheiður lauk stúdentsprófi frá skólanum árið 1956 og hóf störf strax störf við hann næsta skólaár sem ritari þáverandi rektors, Kristins Ármannssonar. Ragnheiður menntaði sig í fornmálum, latínu og grísku, við Háskóla Íslands og kenndi þau fög við Menntaskólann meðfram háskólanáminu. Ragnheiður átti svo í framhaldi mjög langan og farsælan kennsluferil við skólann og gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum. Hún bætti einnig við sig menntun í kennslufræðum, íslenskri málfræði og almennum málvísindum, með fram kennslunni.
Í rektorstíð Ragnheiðar á árunum 1995 til 2001, var stórum áfanga náð í húsnæðismálum skólans, sem löngum hafa þótt erfið. Þá var skólanum færð höfðingleg gjöf af hendi Davíðs S. Jónssonar, í formi Þingholtsstrætis 18. Í framhaldi þess var byggð myndarleg tengibygging milli hússins og Casa nova og innréttaðar vel útbúnar verklegar kennslustofur í raungreinum.
Ragnheiður Torfadóttir fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík hélt tryggð og hollustu við skólann alla tíð. Hún hafði einlægan áhuga á skólastarfi og bar ætíð hag og velferð skólans fyrir brjósti. Hún mætti á brautskráningar nemenda á hverju vori á meðan heilsan leyfði og hafði unun af að sjá efnilega unga fólkið okkar ná lokamarkmiðum sínum við skólann.
Stjórn og starfsfólk Menntaskólans í Reykjavík vottar aðstandendum Ragnheiðar Torfadóttur innilega samúð með þökk fyrir hennar hugheila starf í þágu skólans og menntunar nemenda.