Nemendum ber að kynna sér skólareglur. Þeir fá ekki skotið sér undan brotum á skólareglum með skírskotun til vanþekkingar á þeim.
- Almennar reglur
1.1. Innan vébanda skólans gilda landslög án þess að þeirra sé sérstaklega getið.
1.2. Gagnkvæm virðing, kurteisi og heiðarleiki skal ríkja í samskiptum nemenda og starfsfólks. Háttvísi, prúðmennsku og gott siðferði ber að viðhafa í skólanum og alls staðar þar sem komið er fram í nafni hans.
1.3. Virða skal markmið skólans, stefnu hans og reglur og gæta í hvívetna að varpa ekki rýrð á heiður hans.
- Ástundun og hegðun í tímum
2.1. Sækja skal allar kennslustundir stundvíslega. Nánar er kveðið á um skólasókn í kaflanum Reglur um skólasókn.
2.2. Í kennslustundum skulu nemendur vera virkir, virða verkstjórn kennara og gæta þess að valda ekki ónæði.
2.3. Kennara er heimilt að vísa nemanda úr kennslustund að gefnu tilefni, t.d. fyrir að spilla vinnufriði. Ef slíkt kemur fyrir oftar en einu sinni skal kennari tilkynna það skólastjórnendum sem taka þá málið til meðferðar.
2.4. Notkun farsíma í kennslustundum er háð samþykki kennara. Ef farsími veldur röskun á kennslu er kennara heimilt að víkja nemanda úr tíma. Reglan nær einnig til allra tækja sem geta valdið tilefnislausu ónæði í kennslustundum.
- Umgengni
3.1. Nemendur skulu ganga hreinlega og prúðmannlega um húsakynni og lóð skólans og má enginn skilja eftir sig rusl, hvorki innan dyra né utan. Nemendur skulu stuðla að því að kennslustofur og aðrar vistarverur skólans séu ávallt snyrtilegar.
3.2. Nemendur skulu ganga vel um allan tækjakost og muni skólans. Nemendum er óheimilt að nýta tæki sem er að finna í kennslustofum (t.d. hljómflutningstæki, tölvur og skjávarpa) nema til komi sérstakt leyfi kennara eða skólayfirvalda. Nánar er kveðið á um umgengni og notkun á tölvum skólans í sérstökum reglum (sjá 7. kafla). Sérstakar reglur gilda um sérgreinastofur.
3.3. Ef nemendur verða valdir að skemmdum á húsakynnum eða munum skólans ber umsvifalaust að tilkynna slíkt húsverði eða skrifstofu. Nemendum getur verið gert að bæta skemmdir sem þeir valda.
- Neysla matvæla
4.1. Leyfilegt er að neyta nestis í bekkjarstofum í frímínútum en umgengni þarf ávallt að vera góð.
4.2. Á bókasafni skólans, í sérgreinastofum og tölvuverum má hvorki neyta matar né drykkjar.
- Bann við neyslu tóbaks, áfengis og vímuefna
5.1. Öll notkun á nikótínvörum er bönnuð í húsakynnum og á lóð skólans. Þetta á við um t.d. reyktóbak, neftóbak, munntóbak, rafrettur og nikótínpúða.
5.2. Neysla áfengis og annarra vímuefna er með öllu óheimil í húsakynnum skólans og á lóð hans. Ekki má hafa slíka vímugjafa um hönd í skólanum eða koma til starfa undir áhrifum þeirra. Húsakynni skólans ná hér til allra þeirra húsa þar sem einhver starfsemi fer fram á vegum hans.
5.3. Neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á öllum samkomum, skemmtunum, námsferðum eða ferðalögum sem eru í nafni skólans. Einnig er með öllu óheimilt að vera undir áhrifum vímugjafa við slík tækifæri.
- Útgáfumál nemenda
6.1. Öll útgáfustarfsemi nemenda er á þeirra ábyrgð (ritstjóra, ritnefndar og greinarhöfunda). Þar skal gætt í hvívetna orðalags sem er kurteislegt og skólanum til sóma. Sama á við um alla fjölmiðlun nemenda, t.d. útvarpsstarfsemi, sem og það efni á vefsíðum nemenda og nemendafélaga sem fellur undir vefsvæði skólans.
6.2. Óviðurkvæmilegt eða ærumeiðandi orðalag í útgáfu nemenda, í hvers kyns fjölmiðlun þeirra, sem og á vefsíðum tengdum er bannað.
- Reglur um tölvunotkun
7.1. Tölvubúnaður skólans er eign skólans og ætlaður til náms, kennslu, kynningar og annarra þátta sem samræmast markmiðum skólans.
7.2. Handhafi notandanafns er ábyrgur fyrir allri notkun þess. Óheimilt er að lána öðrum notandanafn sitt og óheimilt er að reyna að tengjast tölvubúnaði skólans með öðru notandanafni en því sem nemandi hefur fengið úthlutað.
7.3. Skólinn áskilur sér rétt til að meðhöndla gögn nemenda eftir því sem þurfa þykir svo sem að fara yfir, skoða og eyða efni á gagnasvæðum.
7.4. Brot á reglum um notkun skólanetsins geta leitt til þess að lokað verði fyrir aðgang viðkomandi nemanda að tölvukerfi skólans, auk viðurlaga sem gilda um brot á skólareglum, sbr. 9. kafla.
- Meðferð ágreiningsmála og mála vegna brota á skólareglum
8.1. Leitast skal við að leysa ágreiningsmál innan skólans. Miðað er við að umsjónarkennarar og námsráðgjafar séu hafðir með í ráðum við meðferð ágreiningsmála sem varða skjólstæðinga þeirra.
8.2. Rísi ágreiningur milli nemenda, kennara og/eða annarra starfsmanna skólans og takist hlutaðeigandi ekki að finna lausn á málinu má vísa því til rektors. Uni málsaðilar ekki niðurstöðu rektors má vísa málinu til menntamálaráðuneytisins.
8.3. Telji nemandi, eða forráðamenn hans sé nemandi yngri en 18 ára, að brotið hafi verið á rétti nemandans, sbr. þessar skólareglur, þannig að ástæða sé til að bera fram kvörtun skulu þeir snúa sér til viðkomandi kennara, fagstjóra, umsjónarkennara eða rektors. Takist ekki að leysa málið tekur rektor það til umfjöllunar og ákvarðar um viðbrögð.
8.4. Brjóti nemandi skólareglur er honum veitt skrifleg viðvörun áður en til áminningar kemur nema brotið sé þess eðlis að því verði ekki við komið, svo sem brot á almennum hegningarlögum. Fái nemandi áminningu skal hún vera skrifleg þar sem fram kemur:
- tilefni áminningar og þau viðbrögð sem fylgja í kjölfarið brjóti nemandi aftur af sér,
- að nemandanum sé gefinn kostur á að andmæla áminningu og skal tímafrestur hans til þess tilgreindur.
8.5. Brjóti ólögráða nemandi reglur skólans eru foreldrar/forráðamenn látnir vita um það. Við meðferð mála skal sérstaklega gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og upplýsingalaga nr. 140/2012.
8.6. Leitast skal við að afgreiða brot á skólareglum með skjótum hætti.
- Viðurlög vegna brota á skólareglum
9.1. Nemendum ber að kynna sér skólareglur. Þeir fá ekki skotið sér undan brotum á skólareglum með skírskotun til vanþekkingar á þeim..
9.2. Skólayfirvöld ákveða hvaða viðurlögum skuli beitt vegna alvarlegra brota á skólareglum.
9.3. Viðurlög við broti á skólareglum geta verið eftirfarandi, eftir því hve skólayfirvöld telja brotið alvarlegt:
- Viðvörun kennara eða umsjónarkennara.
- Rektorsáminning.
- Ítrekuð eða alvarleg brot eru afgreidd sérstaklega af rektor og geta varðað tímabundinni eða endanlegri brottvísun úr skólanum.