Laugardagsæfingar í eðlisfræði hefjast núna á laugardaginn, 4. september kl. 12-14. Æfingarnar verða haldnar í Gamla skóla. Haldnar verða þrjár æfingar núna á haustönninni og síðan fleiri á vorönninni.

Laugardagsæfingarnar eru hugsaðar sem undirbúningur undir forkeppni eðlisfræðikeppni framhaldsskólanna sem fer fram snemma í mars á næsta ári. Laugardagsæfingarnar verða með svipuðu sniði og forkeppnin: 20 krossar sem gilda 70 stig og 2 skriflegar spurningar sem gilda 30 stig sem nemendur fá 2 klst. til að reyna við.