Foreldrum og forráðamönnum nemenda í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík er boðið að koma á kynningarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 29. ágúst kl. 20:00.
Sólveig G. Hannesdóttir rektor mun kynna skólann og skólastarfið. Andrea Edda Guðlaugsdóttir inspector scholae, Ragnheiður Hulda Ö. Dagsdóttir forseti Framtíðarinnar, félagsmálafulltrúi ásamt forvarnarfulltrúa og fulltrúi Foreldrafélags Menntaskólans í Reykjavík ávarpa fundinn.
Að því loknu er foreldrum og forráðamönnum boðið upp í MR þar sem þeir munu eiga fund með umsjónarkennurum og skoða sig um í skólahúsnæðinu. Vonandi sjá sér flestir fært að koma.
Kær kveðja,
Sólveig G. Hannesdóttir rektor.