Einkunnaafhending hjá 4. og 5. bekk fer fram miðvikudaginn 28. maí kl. 12 í heimastofum nemenda. Á sama tíma er opnað fyrir einkunnasýn í Innu.

Prófsýning verður sama dag, hjá 4. og 5. bekk verður prófsýning 12:30-13:15 og hjá 6. bekk 13:30-14:15.

Brautskráning nýstúdenta fer fram í Háskólabíó föstudaginn 30. maí kl. 14. Athöfnin tekur ca. 2 tíma. Nýstúdentar eru beðnir um að mæta ekki seinna en 13:30.