Stofnun ársins er könnun, sem framkvæmd er ár hvert á flestum ríkisstofnunum. Niðurstöður könnunarinnar veita m.a. upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og starfsánægju.
Menntaskólinn í Reykjavík var hástökkvari ársins, stökk hæst allra ríkisstofnana, eða um 31 sæti.
Framhaldsskólar komu afar vel út úr könnunni í ár, voru sigurvegarar í öllum flokkum ríkisstofnana. Viðurkenning af þessu tagi skiptir máli til að tryggja gott starfsfólk í framhaldsskóla, auka starfsánægju og með því vellíðan nemenda.