Á dögunum var málverk af Yngva Péturssyni rektor 2001-2017 afhjúpað á Hátíðarsal skólans við hátíðlega athöfn.

Á Sal hanga nú málverk allra rektora skólans frá 1846 þegar skólinn var settur í fyrsta sinn í núverandi húsnæði, allt til tíð Yngva.

Með Yngva að fagna voru samstarfsfélagar til margra ára en Yngvi á yfir 50 ára starfsferil að baki í MR sem kennari, konrektor og rektor skólans.

Stephen Lárus málaði þetta fallega verk.