Í gær fengum við góða heimsókn þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta-og barnamálaráðherra, ásamt fylgdarliði kom til að kynna sér skólann. Rektor og konrektor ásamt nemendum fylgdu ráðherra um skólann og fóru meðal annars á Íþöku og kíktu í tíma í verklegri efnafræði og eðlisfræði. Að lokum var fundur á hátíðarsal þar sem ráðherra kynnti fyrir okkur fyrirhugaðar breytingar á framhaldsskólakerfinu.
Við þökkum Guðmundi Inga og fylgdarliði kærlega fyrir heimsóknina.
 
			
											
				 
					 
									 
										 
										 
										 
										 
	 
	 
	