Menntaskólinn í Reykjavík brautskráði 194 stúdenta í hátíðlegri athöfn í Háskólabíó föstudaginn 30. maí.
Menntaskólinn í Reykjavík (MR) hélt hátíðlega útskriftarathöfn í dag þar sem 194 stúdentar voru brautskráðir. Af þeim komu 29 af máladeild, 40 af eðlisfræðideild og 125 af náttúrufræðideild. Athöfnin markar lokin á krefjandi en gefandi námsferli fyrir þennan unga hóp.
Í ávarpi rektors kom fram að útskrift væri ætíð ljúfsár stund fyrir starfsfólk skólans, en því væri fagnað að nemendur hefðu náð markmiðum sínu. Rektor lagði áherslu á að nám við MR krefðist vinnusemi, skipulags og fórna, en einnig var lögð áhersla á metnað nemenda ekki bara í námi heldur líka í félagslífinu. Stúdentsefnin eigið mikið hrós skilið fyrir skemmtilegt og vel skipulagt félagslíf síðasta vetur.
Fjölbreytt félagslíf og framúrskarandi árangur
Nemendafélögin tvö, Skólafélagið og Framtíðin, stóðu fyrir fjölbreyttu félagslífi á skólaárinu, þar á meðal busavígslu, busareifi, árshátíð, nýnemaferð á Hvolsvöll, sokkaballi og fiðluballi í Gamla Bíó. Leikfélögin Frúardagur og Herranótt settu upp vinsæla söngleiki, „Rocky Horror“ og „Ástin er diskó, lífið er pönk,“ sem sýndu fram á hæfileika nemenda utan kennslustofunnar.
MR nemendur stóðu sig einnig framúrskarandi vel í fjölda keppna, bæði innanlands og utan. Þeir náðu efstu sætum og unnu til verðlauna í landskeppnum í efnafræði, eðlisfræði, líffræði og stærðfræði, spænskuhátíð, frönskukeppni framhaldsskólanna, þýskuþraut og skák. Lið MR komst einnig í undanúrslit í Gettu Betur.
Útgáfumál voru í miklum blóma, en 178. árgangur Skólablaðsins Skinfaxa kom út í vor. Vísindafélag MR var endurvakið með útgáfu loftslagstímaritsins De Rerum Caelo, sem var styrkt af Loftlagssjóði ungs fólks í Reykjavík. Zkáldskaparfélagið vakti einnig athygli með frumsömdum ljóðum og rósasölu á Valentínusardaginn.
Námsárangur og viðurkenningar
Hæstu einkunnir við brautskráningu hlutu:
• Dúx: Matthildur Bjarnadóttir 6.M með aðaleinkunn 9,65.
• Semidúx: Líba Bragadóttir 6.A með aðaleinkunn 9,49.
Alls fengu um 10% nýstúdenta ágætiseinkunn sem er frábær árangur.
Rektor þakkaði foreldrafélagi MR, afmælisstúdentum og Hollvinafélagi MR fyrir ómetanlegan stuðning við skólastarfið.
Nýlega var málverk af Yngva Péturssyni, fyrrverandi rektor, afhjúpað í hátíðarsal skólans. En þar hanga málverk allra rektora skólans frá því að skólinn var settur í fyrsta sinn á núverandi stað 1846, allt til tíma Yngva.
Hollvinafélagið hefur meðal annars styrkt ritun fimmta bindis af Sögu Reykjavíkurskóla og kaup á sjónvarpsskjám í kennslustofur Gamla skóla. Rektor þakkaði þeim kærlega fyrir mikla velvild og stuðning við skólann.
Kveðjuorð og framtíðarsýn
Í kveðjuorðum sínum til útskriftarnemenda sagði rektor: „Þið eruð framtíðin okkar og eruð betur til þess fallin en við sem eldri erum að leysa vanda og aðlagast breyttum heimi sem blasir við ykkur, með nýjum áskorunum og tækifærum.“ Hún hvatti þau til að sýna dug, kjark og þor en einnig að vera góð og blíð hvert við annað.
Rektor lagði í máli sínu áherslu á að húsnæðisvanda MR yrði mætt sem fyrst.
Minningu þriggja einstaklinga sem tengdust skólanum sterkum böndum var einnig heiðruð. Árni Indriðason, sögukennari til 44 ára, Ragnheiður Torfadóttir, fyrrum rektor og latínukennari, og Birgir Guðjónsson, stærðfræðikennari, sem öll féllu frá á liðnu skólaári
Í vetur var stofnaður nýr verðlaunasjóður við skólann, á grunni eldri sjóðs sem var lagður niður. Minningarsjóður dr. Ólafs Dan Daníelssonar veitir þeim nemanda verðlaun sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í stærðfræði. Dr. Ólafur Dan var fyrsti Íslendingurinn til að ljúka doktorsprófi í stærðfræði. Hann kenndi stærðfræði við skólann um árabil og tók þátt í því að stofna nýja stærðfræðideild við skólann árið 1919, auk þess að skrifa fjölda kennslubóka í stærðfræði.
Í vor voru í fyrsta skiptið verðlaun úr Minningarsjóði Dr. Ólafs Dan Daníelssonar, og voru þau veitt í minningu Birgis Guðjónssonar.
Rektor sleit Menntaskólanum í Reykjavík í 179. sinn og óskaði nýstúdentum velfarnaðar á komandi árum.
(Myndir teknar af Haraldi Guðjónssyni Thors)