Fimm fyrrverandi nemendur skólans tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum.
Styrkþegarnir eru:
Álfrún Lind Helgadóttir
Hildur Vala Ingvarsdóttir
Jóanna Marianova Siarova
Sigrún Edda Arnarsdóttir
Todor Miljevic
Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana eru á vef Háskóla Íslands: https://www.hi.is/frettir/rumlega_30_afreksnemar_fa_styrk_til_nams_i_haskola_islands
Við óskum þeim innilega til hamingju með styrkinn og óskum þeim góðs gengis í náminu framundan.