Þegar kveikt er í blöndu sem er 10,0 g af etyni (C2H2) og 10,0 g af súrefni, O2, myndast í brunanum CO2 og H2O.
a) Stillt efnajafn er:
2C2H2(g) + 5O2(g) ---> 4CO2(g) + 2H2O(g)
Efnajafna | 2C2H2(g) | + 5O2(g) ---> | 4CO2(g) | + 2H2O(g) |
Fyrir hvarf | 10,0g/26,0g/mól = 0,385mól |
10,0g/32,0g/mól = 0,313mól |
0,0mól | 0,0mól |
Breyting | -2/5·0,313mól = - 0,125mól |
- 0,313mól | 4/5·0,313mól = 0,250mól |
2/5·0,313mól = 0,125mól |
b) Súrefnið er takmarkandi þar sem 2,5 mól af því þarf til að hvarfast við 1,0 mól af etýni, C2H2, en færri mól eru af súrefni en etýni.
Einnig sést að hlutfallið mól af súrefni deilt með stuðlinum við það er minna en hlutfallið mól af etyni deilt með stuðlinum við það: 0,313/5 = 0,0626 < 0,385/2 = 0,193, sem sýnir að súrefnið er takmarkandi.
Í töflunni er sýnd breyting móla efnanna ef allt súrefnið hvarfast.
Það er einfalt að finna mól af efnunum eftir hvarfið og umreikna þau í grömm.
Svaraðu spurningu c) áður en þú skoðar framhaldið.