Verðlaunaafhending í keppni grunnskólanemenda í stærðfræði fór fram á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík sunnudaginn 16. apríl.

 

Verðlaunahafar í 8. bekk eru:

Sæti Nafn og skóli
1. Alexander Arnar Björnsson Vogaskóla
2. Sólveig Freyja Hákonardóttir Smáraskóla
3. Hákon Árni Heiðarsson Garðaskóla
4. Jannika Jónsdóttir Hagaskóla
5.-7. Björn Höjgaard V. Steinsson Hagaskóla
5.-7. Jónas Jökull Sigurjónsson Laugalækjaskóla
5.-7. Sara Björt Ámundadóttir Vogaskóla
8. Tryggvi Kristinn Sveinbjörnsson Hagaskóla
9.-10. Einar Helgi Dóruson Árbæjarskóla
9.-10. Haraldur Áss Liljuson Hagaskóla

 

Verðlaunahafar í 9. bekk eru:

Sæti Nafn og skóli
1. Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir Garðaskóla
2. Daði Logason Laugalækjaskóla
3. Einar Tryggvi Petersen Árbæjarskóla
4.-5. Heiðrún María Guðmundsdóttir Réttarholtsskóla
4.-5. Stefán Garðar Stígsson Hagaskóla
6. Matthías Máni Þorsteinsson Foldaskóla
7. Victor Pétur Sánchez-Brunete Hagaskóla
8. Davíð Freyr Magnússon Hagaskóla
9. Ólafur Björn Hansson Valhúsaskóla
10.-11. Lóa Margrét Gunnarsdóttir Laugalækjaskóla
10.-11. Þorsteinn Snæland Réttarholtsskóla

 

Verðlaunahafar í 10. bekk eru:

Sæti Nafn og skóli
1. Höskuldur Tinni Einarsson Hlíðaskóla
2. Mikael Nói Richter Smáraskóla
3. Matthías Guðni Elínarson Suðurhlíðaskóla
4.-6. Erlingur Ólafsson Foldaskóla
4.-6. Jóakim Uni Arnaldsson Hagaskóla
4.-6. Thor Kárason Valhúsaskóla
7.-8. Iðunn Helgadóttir Landakotsskóla
7.-8. Magnús Thor Holloway Hlíðaskóla
9.-11. Benedikt Björgvinsson Garðaskóla
9.-11. Elsa Kristín Arnaldardóttir Garðaskóla
9.-11. Merkúr Máni Hermannsson Austurbæjarskóla

 

Athöfnin var afar vel sótt og var salurinn þétt setinn.

Stærðfræðikeppni grunnskólanema var haldin í MR þriðjudaginn 14. mars. Alls tóku 359 nemendur úr 18 grunnskólum þátt í keppninni úr 8., 9. og 10. bekk eða um 120 í hverjum árgangi og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri. Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur var nú haldin í 18. skipti í Menntaskólanum í Reykjavík en keppnin var síðast haldin fyrir fjórum árum vegna ýmissa takmarkana. Sólveig G. Hannesdóttir rektor bauð gesti velkomna og sagði lítið eitt frá sögu skólans. Úlfar Freyr Sigurgeirsson nemandi í 6.S flutti fjörugt lag á flygil áður en Einar Guðfinnsson fagstjóri í stærðfræði og Bjarni Gunnarsson stærðfræðikennari afhentu verðlaun og viðurkenningar. Nemendur í 10-11 efstu sætunum á hverju stigi fengu viðurkenningarskjal frá skólanum og reiknivél af gerðinni Casio frá Heimilistækjum en þrír efstu á hverju stigi fengu einnig peningaverðlaun frá Arionbanka. Rektor þakkaði stærðfræðikennurum fyrir skipulagningu athafnarinnar og umsjón með framkvæmd keppninnar, 5. og 6. bekkingum fyrir aðstoð við yfirsetu í keppninni og Arionbanka fyrir að styrkja keppnina. Einnig þakkaði hann fyrir gott samstarf með skólastjórum og stærðfræðikennurum grunnskólanna sem tóku þátt og síðast en ekki síst grunnskólanemendum fyrir þátttökuna.